Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Utanrrn. hefur ekki mjög mikil samskipti við Alþjóðaþingmannsambandið af eðlilegum ástæðum en ég vil þakka fyrir það starf sem þar hefur verið unnið. Segja má að við stöndum að mörgu leyti nær ýmsum öðrum samtökum sem tengjast þeim alþjóðastofnunum sem við vinnum innan, eins og Atlantshafsbandalaginu, Evrópuráðinu og Vestur-Evrópusambandinu, ÖSE, þingmannsamtökum EFTA o.s.frv. en Alþjóðaþingmannasambandið er allt öðruvísi samtök, sem ég tel vera afar mikilvæg, og þess vegna er leitt til þess að vita ef þau eru að veikjast.
Ég tel að þetta starf hafi hjálpað lýðræðisþróuninni í heiminum og orðið til þess að þingmenn frá ríkjum sem ekki búa við lýðræði hafi orðið fyrir áhrifum. Ég minnist þess í það eina skipti sem ég hef sótt þingfundi Alþjóðaþingmannasambandsins fyrir 24 árum í Madrid, að þar hlustaði maður á ræður um það hve miklu betra lýðræði það væri ef aðeins einn flokkur væri í framboði. Þá væri lýðræðið innan flokksins en ekki nein vandræði af því að vera með marga flokka.
Þetta hefur breyst. Ég held að það sé ekki síst vegna þess að menn hafa haldið slíku starfi úti. Ég er alveg viss um að á þessum tíma, þ.e. 1976 þegar þetta þing var haldið í Madrid þá er lýðræðið var að brjótast fram á Spáni, hjálpaði þessi starfsemi því ferli í verulegum mæli og varð til að þrýsta á þá lýðræðisþróun sem þar var í fæðingu.
Mér finnst mikil skammsýni, hvort sem það er hjá Bandaríkjamönnum eða öðrum, að vanrækja þetta starf, ekki síst fyrir þjóð sem starfar jafnmikið á alþjóðavettvangi og lætur sig jafnmikið varða lýðræðisþróun í heiminum öllum. Mér finnst þannig afar mikilvægt að leggja á það áherslu við þá stóru og miklu þjóð, Bandaríkin, að halda áfram á þessari braut. Ég er viss um það getur haft veruleg áhrif á framvindu mála og þá miklu sókn sem lýðræðið er í um allan heim.