Þinglýsingalög

Miðvikudaginn 26. apríl 2000, kl. 11:40:59 (6636)

2000-04-26 11:40:59# 125. lþ. 102.15 fundur 281. mál: #A þinglýsingalög# (Landskrá fasteigna) frv. 45/2000, Frsm. ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 125. lþ.

[11:40]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá hv. allshn. um frv. til laga um breyting á þinglýsingalögum, nr. 39/1978.

Frumvarp þetta er einn þáttur í því að koma á Landskrá fasteigna, samhæfðu gagna- og upplýsingakerfi um fasteignir og réttindi sem þeim tengjast.

Í frumvarpinu er m.a. kveðið á um hvernig fasteign verður stofnuð í Landskrá fasteigna auk breytinga sem eru nauðsynlegar vegna Landskrárinnar.

Við meðferð málsins vöknuðu umræður um vernd persónuupplýsinga og aðgang að upplýsingum þeim sem Landskrá fasteigna mun hafa að geyma og voru nefndarmenn ekki allir á einu máli um hversu opinn aðgangur að þessum upplýsingum eigi að vera.

Rétt er að geta þess að tölvunefnd gerði ekki athugasemdir við þetta þinglýsingafrumvarp.

Núverandi framkvæmd gerir ráð fyrir að unnt sé að kaupa þinglýsingarvottorð fyrir sérhverja fasteign hjá þinglýsingarstjóra í umdæmi hans. Á þinglýsingarvottorði eru tilgreindir eigendur, veðhafar og fjárhæðir veðskulda. Hver sem er getur þannig keypt afrit kaupsamnings fasteignar en þar koma m.a. fram upplýsingar um kaupverð, greiðsluskilmála og fjármögnun kaupanda. Engin sérstök leynd eða trúnaður hvílir á framangreindum upplýsingum úr þinglýsingabók samkvæmt gildandi lögum. Upplýst var á fundum nefndarinnar með fulltrúum dómsmálaráðuneytis að ráðuneytið hefur með samningi heimilað tilteknum aðilum að selja beinlínuaðgang að tölvufærðum þinglýsingabókum sýslumannsembættanna í Hafnarfirði, á Ísafirði og í Reykjavík. Jafnframt var greint frá því að fyrst um sinn væri gert ráð fyrir óbreyttu fyrirkomulagi á sölu beinlínuaðgangs að þinglýsingabókum og fasteignamatsskrá verði fyrrgreind frumvörp að lögum. Þá kom fram að á grundvelli 53. gr. þinglýsingalaga og að höfðu samráði við tölvunefnd hefur dómsmálaráðherra gefið út reglugerð um þinglýsingar. Í 2. mgr. 9. gr. þeirrar reglugerðar er lagt bann við eignaleit í tölvukerfi þinglýsinga eftir heiti eða kennitölu eiganda. Jafnframt kveður reglugerðin á um að dómsmálaráðherra veiti aðeins leyfi til beinlínuaðgangs að efni tölvufærðra þinglýsingabóka að fenginni jákvæðri umsögn tölvunefndar. Nefndin hefur fengið þær upplýsingar frá ráðuneytinu að þeir aðilar sem heimilaður hefur verið slíkur aðgangur séu aðilar í atvinnulífinu, einkum fasteignasölur, lögmannsstofur, fjármálastofnanir og tryggingafélög enda aðgengi að þessum upplýsingum mikilvægt fyrir hagsmuni atvinnulífsins.

Telur nefndin að hagræði verði af heildstæðu gagna- og upplýsingakerfi um fasteignir. Skráning upplýsinga verður samræmdari og samhæfðari og áreiðanleiki upplýsinganna meiri.

Herra forseti. Allshn. mælir með því að frv. verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.