Stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum

Miðvikudaginn 26. apríl 2000, kl. 13:36:09 (6657)

2000-04-26 13:36:09# 125. lþ. 102.12 fundur 407. mál: #A stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum# (flutningur aflahámarks) frv. 36/2000, JÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 125. lþ.

[13:36]

Jóhann Ársælsson:

Hæstv. forseti. með þessu frv. er verið að staðfesta eignarhald útgerðarinnar á öllum norsk-íslenska síldarstofninum. Við samfylkingarmenn erum andvígir þessum fyrirætlunum og alfarið á móti eignarhaldi útgerðarmanna á veiðiheimildum. Þess vegna greiðum við atkvæði gegn þessu frv.