Þingflokkar á Alþingi

Fimmtudaginn 27. apríl 2000, kl. 13:36:44 (6678)

2000-04-27 13:36:44# 125. lþ. 103.92 fundur 465#B þingflokkar á Alþingi# (aths. um störf þingsins), GAK
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 125. lþ.

[13:36]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins af því tilefni að það virðist ekki vera alveg ljóst hjá Ríkisútvarpinu að þingflokkar á Alþingi eru fimm. Vil ég mælast til þess við hæstv. forseta að hann sendi sérstakt bréf til Ríkisútvarpsins um að þannig sé því háttað á hv. Alþingi að þingflokkar eru fimm og að í samræmi við 15. gr. laga um Ríkisútvarpið gæti það fyllstu óhlutdrægni í frjálsri túlkun og dagskrárgerð.