Svör við fyrirspurnum og viðvera ráðherra

Fimmtudaginn 27. apríl 2000, kl. 13:40:40 (6681)

2000-04-27 13:40:40# 125. lþ. 103.97 fundur 469#B svör við fyrirspurnum og viðvera ráðherra# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 125. lþ.

[13:40]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti hefur hlýtt á athugasemdir hv. þm. en eins og hann gat um sjálfur eru svör við fyrirspurnum þingmanna til ráðherra á ábyrgð hinna síðarnefndu. Þannig háttar til að hæstv. fjmrh. hefur fjarvistarleyfi í dag og getur því ekki tekið til svara en forseti mun eins og venja er til koma þeim ábendingum sem hér hafa verið færðar fram rétta boðleið.