Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Nefndin hafði samráð við forustumenn Landssambands smábátaeigenda og formaður nefndarinnar hafði allnokkrum sinnum samband við forustumenn Landssambands smábátaeigenda þannig að þeim er mjög vel kunnugt um niðurstöðuna. Það er svolítið erfitt út af fyrir sig að segja að þeir blessi þetta algjörlega en ég held að þeir geri engar athugasemdir við þessa niðurstöðu nefndarinnar og telja að þetta mundi leysa þann vanda sem annars hefði komið upp hjá einstökum útgerðarmönnum.
Ég á ekki von á því að það séu mörg tilvik þar sem menn eru í þeirri stöðu að vilja fara inn í þetta krókaaflamark því að auðvitað er það augljóst mál að það fyrirkomulag sem við höfum kallað þorskaflahámark er miklu vænlegra fyrir langflestar útgerðir smábáta í landinu. Það eru út af fyrir sig vissar skorður sem menn hafa varðandi þorskinn. Menn hafa hins vegar frjálsar hendur varðandi aðrar tegundir. Þess vegna munu væntanlega langflestir útgerðarmenn kjósa að vera áfram í þorskaflahámarkinu. Það eru auðvitað tilvik útgerðarmanna þar sem þeir sjá hagsmunum sínum betur borgið með því að fara inn í þetta krókaaflamark og auðvitað mun reynslan leiða í ljós hvora leiðina menn fara. Ég vek athygli á því að menn fara ekki inn í þetta krókaaflamark með meiri heimildir en þeir höfðu með bátunum sínum 1. apríl sl. Út af fyrir sig er því sett undir þann leka sem alltaf er við svona breytingar, að menn vilja fara að reyna að spila á kerfið. Ég vonast til þess að við höfum sett undir þann leka og komið í veg fyrir að menn væru með einhverja spilamennsku í kringum þetta. Ég held að með þessum efnum sé verið að ná því markmiði í meginatriðum, í fyrsta lagi að verja þorskaflahámarkið sem frá mínum bæjardyrum séð er stóra markmiðið með þessu máli öllu saman, verja það a.m.k. um eins árs skeið, skapa okkur þá a.m.k. nýtt svigrúm í málinu og í öðru lagi að koma í veg fyrir að þeir sem hafa gripið til fjárhagslegra skuldbindinga á grundvelli gildandi laga fari illa vegna lagasetningar Alþingis.