Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Það mátti jafnvel skilja hv. þm. þannig að óþarfi væri fyrir flokka að fylgja stefnu sinni eftir með tillöguflutningi á Alþingi, spurningin væri fyrst og fremst að búa til upplegg að vinnuferli svo menn gætu náð saman. A.m.k. virðist það eiga við í þessu máli. Þess vegna er áhugavert, herra forseti, að fá að vita hjá hv. þm. hvort þetta er línan sem áfram verður fylgt hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði, þ.e. að menn leggi hér fyrst og fremst áherslu á að koma í gang vinnuferli, ekkert síður gagnvart ríkisstjórnarflokkunum heldur en öðrum stjórnarandstöðuflokkum, ef marka mátti orð hv. þm., vegna þess að það að flytja hér beinharðar tillögur hafi bara ekkert upp á sig, menn eigi ekkert að láta sig dreyma um að vera með slík vinnubrögð af því að þau skili kannski engu. Mér finnst þetta mjög merkilegt. Ég verð að segja það. Mér finnst mjög merkilegt að leggja mál upp með þessum hætti og sýna í hvers konar vörn menn eru komnir fyrir þá tillögu sem hér hefur verið gerð að umræðuefni í dag og reyndar áður.