Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir eigin tillögu sem ég flyt fyrir 3. umr., þetta er einungis tæknilegs eðlis. Tillagan er sú að breyting verði á 2. gr. laganna sem fjallar um skýringar á hugtökum.
Í fyrsta lagi verði það þannig að í stað orðsins ,,eignarréttinda`` í skýringu hugtaksins ,,eignarskráningar``, þá verði fjallað um ,,réttindi`` í staðinn fyrir ,,eignarréttindi``.
Í öðru lagi er ég að gera tillögu um betrumbót á skýringarhugtakinu ,,efndalok`` sem verði þá þannig að efndalok þýði ,,fullnaðaruppgjör viðskipta reikningsstofnana með rafbréf og fullar efndir á þeim, svo sem með greiðslujöfnun eða peningagreiðslu, sem lagðar eru til grundvallar við lokafærslu á reikning í verðbréfamiðstöð``.
Þetta eru, virðulegi forseti, atriði sem komu upp eftir 2. umr. og eru flutt í samráði við viðskrn.