Barnalög

Fimmtudaginn 27. apríl 2000, kl. 21:45:27 (6792)

2000-04-27 21:45:27# 125. lþ. 103.18 fundur 339. mál: #A barnalög# (ráðgjöf um forsjá og umgengni) frv., Flm. ÁRJ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 125. lþ.

[21:45]

Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga á þskj. 592, það er 339. mál, um breytingu á barnalögum nr. 20/1992, með síðari breytingum. Flm. ásamt þeirri sem hér stendur eru hv. þm. Bryndís Hlöðversdóttir, Einar Már Sigurðarson, Gísli S. Einarsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Jóhann Ársælsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson, Margrét Frímannsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Sighvatur Björgvinsson, Sigríður Jóhannesdóttir, Svanfríður Jónasdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Össur Skarphéðinsson, þ.e. ásamt mér flytja þetta þingmál allir þingmenn Samfylkingarinnar.

1. gr. frv. er í þá veru að við 32. gr. laganna bætist tvær nýjar málsgreinar sem hljóða svo:

,,Áður en forsjá barns er skipað skv. 2. mgr., samningur um forsjá skv. 33. gr. hlýtur staðfestingu sýslumanns og áður en forsjármál er tekið til úrlausnar skv. 34. gr. skulu foreldrar sækja ráðgjöf á vegum dómsmálaráðuneytisins sér að kostnaðarlausu. Tilgangur ráðgjafar er fyrst og fremst að ná sáttum milli foreldra um forsjá, umgengnisrétt og fasta búsetubarns en jafnframt að upplýsa foreldra um sameiginleg réttindi þeirra og skyldur gagnvart börnunum eftir skilnað. Ráðherra skal með reglugerð setja nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis, m.a. um skipulag og efni ráðgjafartíma og um viðurkenningu aðila sem annast skulu ráðgjöfina. Þeir sem annast ráðgjöf samkvæmt þessari málsgrein eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir komast að í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, venju eða eðli máls.

Ákvæði 5. mgr. gilda þó ekki ef ógilda skal hjúskap á grundvelli 27. gr. hjúskaparlaga, nr. 31/1993, eða ef skilnaðar er krafist á grundvelli 40. gr. sömu laga.``

Herra forseti. Þetta frv. er flutt í þeim tilgangi að setja í lög ákveðin atriði, þ.e. leiðir til þess að tryggja umgengni barna við báða foreldra sína. Í tvígang á síðasta kjörtímabili flutti ég ásamt hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni till. til þál. um bætta réttarstöðu barna til umgengni við báða foreldra sína þar sem var farið fram á að Alþingi ályktaði að fela dómsmrh. að skipa nefnd til að gera úttekt á íslenskum lögum og réttarframkvæmd sem varðar réttarstöðu barna til umgengni við báða foreldra sína og nefndin geri tillögu sem miði að því að tryggja að börnin fái notið umgengni og samvista við báða foreldra sína betur en nú er.

Þingmenn Samfylkingarinnar hafa einnig flutt þingmál til að tryggja réttindi barna samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og er þetta mál einnig til þess að festa slík réttindi í lög.

Í þingmálinu þar sem lagt var til að Alþingi færi í þá vinnu að tryggja rétt barna til umgengni við báða foreldra sína voru lagðar til ýmsar leiðir til að ná þessum réttindum og meðal þeirra leiða sem bent var á var skilnaðarráðgjöfin sem hér er verið að setja fram í frv. Í umsögnum um þetta þingmál kemur einnig fram að mjög mikil þörf sé á slíkri ráðgjöf og einnig er eitt af stefnumálum Samfylkingarinnar að koma á slíkri ráðgjöf í þágu barna. Einnig má geta þess að nú er á vegum dómsmrn. verið að gera tilraun í þessa veru.

Í 42. gr. hjúskaparlaga, nr. 31/1993, er að finna ákvæði um sáttaumleitan meðal hjóna sem hafa ákveðið að leita skilnaðar. Þar kemur m.a. fram að skylt sé að leita sátta milli hjóna sem fara með forsjá ósjálfráða barns. Sáttaumleitan felst í því að kanna áframhaldandi grundvöll hjúskapar. Hins vegar er ekkert ákvæði í lögum sem skyldar fólk til að sækja sérstaka skilnaðarráðgjöf áður en gengið er frá hjónaskilnaði þar sem rætt sé um skyldur foreldra gagnvart börnum eftir að skilnaður er um garð genginn, þ.e. um umgengnisrétt og réttindi og skyldur forsjárlauss foreldris. Þá er ekki að finna slík ákvæði um fólk í óvígðri sambúð sem er að slíta samvistum.

Í frumvarpinu er lagt til að ákvæði verði bætt við 32. gr. barnalaga, nr. 20/1992, um skyldu hjóna og sambýlisfólks til að sækja skilnaðarráðgjöf sem dómsmálaráðuneytið annist og fjármagni að öllu leyti.

Það er sem sagt verið að leggja til vandaða skilnaðarráðgjöf sem á að vera þeim að kostnaðarlausu sem eru að slíta samvistum og eru með börn á framfæri.

Ef þetta ákvæði verður sett í lög er það skilyrði fyrir staðfestingu sýslumanns á samningi um forsjá barna að fólk hafi sótt ráðgjafartíma. Þá er það einnig skilyrði fyrir úrlausn dómstóls eða dómsmálaráðuneytis. Gert er ráð fyrir að ráðherra kveði nánar á um skipulag skilnaðarráðgjafar í reglugerð. Slík ráðgjöf gæti t.d. falið í sér viðtöl með fagfólki, svo sem félagsráðgjöfum, sálfræðingum og lögfræðingum, þar sem fólk fengi aðstoð við að ganga frá forsjár- og umgengnismálum þannig að sátt ríkti um þá skipan og reynt væri að leysa vandamálin áður en þau koma upp. Lögð er áhersla á að ráðgjöf af þessu tagi verður að vera endurgjaldslaus og aðgengileg fyrir foreldra hvar sem er á landinu. Þá er gert ráð fyrir að ráðherra viðurkenni ákveðna aðila sem fullnægi skilyrðum dómsmálaráðuneytis til að taka að sér skilnaðarráðgjöf en þar getur verið um að ræða einstaklinga, félög eða stofnanir. Ákvæðið er hugsað sem hrein viðbót við þá vinnu sem sýslumenn og dómarar sinna skv. 43. gr. hjúskaparlaga, nr. 31/1993, en telja verður vænlegra til árangurs að fólk geti sótt tíma hjá sérfræðingum til að fara yfir þessi viðkvæmu mál í ró og næði, einkum hvað varðar forsjá og umgengnisrétt, áður en komið er að því að ganga frá samningum hjá sýslumanni eða dómara. Þrátt fyrir breytingu á barnalögum hvílir áfram sú skylda á sýslumanni eða héraðsdómara að reyna að koma á samningum um skilnaðarkjör samkvæmt hjúskaparlögum.

Í síðari efnismálsgrein 1. gr. er að finna tvær undantekningar frá skyldu til að sækja skilnaðarráðgjöf. Í fyrsta lagi ef hjúskap skal ógilda skv. 27. gr. hjúskaparlaga, nr. 31/1993, en þar er kveðið á um skyldu til að ógilda hjúskap ef brotið er gegn skyldleikaskilyrði 9. gr. eða tvíkvænisskilyrði 11. gr. laganna. Í öðru lagi er ekki skylt að sækja skilnaðarráðgjöf ef krafist er skilnaðar á grundvelli 40. gr. hjúskaparlaga þar sem telja verður grundvöll fyrir ráðgjöf brostinn með öllu í slíkum tilfellum. Í 40. gr. segir að ef annað hjóna hefur orðið uppvíst að líkamsárás eða kynferðisbroti er bitnar á hinu eða barni sem býr hjá þeim getur hitt krafist lögskilnaðar, enda sé verknaður framinn af ásettu ráði og valdi tjóni á líkama eða heilbrigði þess er fyrir verður. Sama máli gegnir ef maki hefur sýnt af sér atferli sem fallið er til að vekja alvarlegan ótta um að hann gerist sekur um framangreindan verknað. Nauðsynlegt er að tryggja rétt barna til umgengni við báða foreldra sína og velferð þeirra við skilnað foreldra. Þessi lagabreyting er ein af þeim leiðum sem stuðlað gæti að því.

Flutningsmenn telja nauðsynlegt að koma upp hér á landi vandaðri skilnaðarráðgjöf í tengslum við hjónaskilnaði og sambúðarslit. Hægt væri að setja sem skilyrði fyrir útgáfu skilnaðarleyfis eða staðfestingu forsjárákvörðunar að foreldrar hafi sótt t.d. einn til fimm ráðgjafartíma þar sem lögfræðingar, félagsráðgjafar eða sálfræðingar aðstoða foreldra við að ganga frá forsjár- og umgengnismálum. Um fjölda ráðgjafartíma væri hægt að kveða nánar á í reglugerð.

Skilnaðarráðgjöf er fyrirbyggjandi úrræði sem hefur reynst vel annars staðar, m.a. í Noregi, --- samkvæmt nýjustu upplýsingum um árangurinn af þessari leið á Norðurlöndunum hefur það sýnt sig að deilumálum hefur fækkað verulega og einnig dómsmálum í þessum málaflokki --- og er talið að slíkt fyrirkomulag spari einstaklingum og samfélaginu bæði orku, tíma og fjármuni. Í niðurstöðum skýrslu félagsmálaráðuneytis um rannsókn á högum barnafjölskyldna kom fram að brýn þörf væri á endurgjaldslausri ráðgjöf fyrir fólk í skilnaðarhugleiðingum. Í umsögn Félags einstæðra foreldra um þingsályktun þá sem ég nefndi fyrr í máli mínu um bætta réttarstöðu barna til umgengni við báða foreldra sína, kemur fram að eitt viðtal við báða foreldra geti verið árangursríkt í því skyni að eyða spennu milli þeirra. Þar kemur einnig fram að deilur foreldra snúast oftar um óuppgerðar tilfinningar en velferð barnanna. Í þessum málum er brýnt að réttur barnsins verði ávallt í fyrirrúmi.

Herra forseti. Í þál. þeirri sem ég hef hér vitnað til og var undanfari þessa frv. eru rakin ýmis rök fyrir því hvers vegna tryggja beri börnum umgengni við báða foreldra sína og einnig farið yfir það hvernig staða mála er hér á landi í málefnum barna þeirra foreldra sem skilja. Þar segir í grg. með leyfi forseta:

,,Margar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum föðurleysis á börn og ber flestum saman um að það hafi miður góð áhrif á tilfinningaþroska þeirra, félagsmótun og frammistöðu í námi. Nú er svo komið að hjónaskilnaðir eru um 40% á móti fjölda árlegra hjónavígslna. Þannig leysast rúmlega 500 heimili upp á ári hverju vegna hjónaskilnaða, en þá er óvígð sambúð ekki talin með. Við bætast börn fædd utan hjónabands eða sambúðar.``

Nú er það svo, herra forseti, að greidd eru meðlög með á milli 14 og 15 þúsund börnum í landinu í gegnum Tryggingastofnun ríkisins og þá eru ekki taldar meðlagsgreiðslur sem fara ekki þar í gegn.

,,Mikilvægt er að skilnaður foreldra hafi ekki þær afleiðingar að börn missi af öðru foreldri sínu. Rétturinn til samveru með báðum foreldrum telst til grundvallarmannréttinda. Það er ljóst að viðhorf manna og virðing fyrir rétti barna hefur breyst mikið síðari ár. Þá er afstaða til aukinnar þátttöku feðra í uppeldi barna öll önnur en var. Menn líta til aukinnar ábyrgðar feðra á uppeldi barna sinna, svo og réttar þeirra til þátttöku í forsjárskyldum og réttar til rúmrar umgengni við börn sem búa ekki hjá þeim.``

Rannsókn sú sem ég vitnaði til áðan í máli mínu sem gerð var á vegum félmrn. á ,,Ári fjölskyldunnar``, þ.e. árið 1995, leiddi í ljós að feður án forsjár vildu almennt hafa meiri tengsl við börn sín og bera meiri ábyrgð á þeim. Í umsögn og samantekt frá Félagi einstæðra foreldra á erindum sem berast félaginu kemur í ljós að það hefur færst mikið í vöxt að feður leiti aðstoðar í forsjár- og umgengnismálum. Ef umgengnisréttur yrði betur tryggður leiddi það til þess að sameiginleg forsjá barna yrði ákjósanlegri kostur og ráðgjöf eins og sú sem við leggjum til hér í þessu frv. til breytinga á barnalögunum mun að öllum líkindum leiða til þess að sú leið yrði oftar farin.

[22:00]

Reynslan hefur sýnt að hugmyndin um sameiginlega forsjá hefur átt frekar erfitt uppdráttar hér á landi. Þær leiðir eða úrræði, sem eru fyrir í lögum, til að koma á aukinni umgengni barna við foreldra sína eru máttlaus. Þess vegna höfum við lagt til skilnaðarráðgjöf í frv., þ.e. ókeypis skilnaðaðarráðgjöf fyrir foreldra sem slíta hjúskap eða samvist. Við erum einnig með tillögu um að barni verði skipaður talsmaður. Það er í öðru frv. sem er síðar á dagskránni og mun ég gera grein fyrir þeirri lagabreytingu aðeins síðar á fundinum.

Herra forseti. Mikið hagsmunamál er hér á ferðinni fyrir mjög stóran hóp barna eins og komið hefur fram. Óvenjulega stór hópur barna elst upp aðeins með öðru foreldri sínu. Það hefur komið í ljós að ástæðan fyrir því að oft kemur upp ósætti er að fólk hefur ekki leyst viðkvæm mál, þ.e. foreldrar barnanna hafa ekki gert upp mál sín. Því er skilnaðarráðgjöf mjög góður kostur og eins og ég sagði áður hefur komið í ljós að á Norðurlöndunum hefur þetta reynst ákaflega vel.

Herra forseti. Að lokinni umræðu um þetta frv. legg ég til að málið fari til hv. allshn.