2000-05-04 12:13:22# 125. lþ. 105.21 fundur 582. mál: #A staðfesting samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000# þál. 9/125, Frsm. TIO
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur, 125. lþ.

[12:13]

Frsm. utanrmn. (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta nokkra samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000.

Hinn 6. maí 1996 var undirrituð í Ósló bókun um verndun, skynsamlega nýtingu og stjórnun veiða á norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi. Aðilar eru strandríkin fjögur, Ísland, Færeyjar, Noregur og Rússland. Þau skuldbinda sig í bókuninni til að starfa saman að verndun síldarstofnsins, skynsamlegri nýtingu hans og stjórn veiða úr honum í því skyni að tryggja sjálfbæra nýtingu stofnsins til langs tíma.

Á fundi aðila í október á síðasta ári náðist samkomulag um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000. Heildaraflamarkið var ákveðið 1.240.000 lestir, en það var 1.300.000 lestir árið 1999.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nál. rita Tómas Ingi Olrich, Jón Kristjánsson, Árni R. Árnason, Einar K. Guðfinnsson, Jónína Bjartmarz, Vilhjálmur Egilsson, Sighvatur Björgvinsson og Steingrímur J. Sigfússon.