Staðfesting ýmissa ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar

Fimmtudaginn 04. maí 2000, kl. 14:40:59 (6897)

2000-05-04 14:40:59# 125. lþ. 106.6 fundur 587. mál: #A staðfesting ýmissa ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar# þál. 12/125, MF (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 125. lþ.

[14:40]

Margrét Frímannsdóttir (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mér er í sjálfu sér ekkert að vanbúnaði að tala í þessu máli. Ég hef aðeins örstuttar athugasemdir og við stöndum að því nál. sem meiri hlutinn hefur hér skilað. Engu að síður hlýt ég að taka undir þær kröfur sem komið hafa fram hjá hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni að aðilar máls séu staddir í salnum þegar óskað er eftir því. Ég tek undir þá kröfu.

(Forseti (GÁS): Forseti vill árétta það sem hann sagði áðan. Hann mun kalla viðkomandi nefndarformenn til þessa fundar.)