Flugmálaáætlun 2000 - 2003

Fimmtudaginn 04. maí 2000, kl. 15:20:26 (6908)

2000-05-04 15:20:26# 125. lþ. 106.8 fundur 299. mál: #A flugmálaáætlun 2000 - 2003# þál. 14/125, Frsm. ÁJ
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 125. lþ.

[15:20]

Frsm. samgn. (Árni Johnsen):

Herra forseti. Það er eðlilegt að útskýra aðeins viðbót við nál. samgn. sem stendur öll að frv.

Ráðgert er að gera breytingar á framsetningu á kafla 1.1 til 1.3 í flugmálaáætun til samræmis við fyrirhugaðar breytingar á útliti allra þriggja áætlana í samgöngumálum, þ.e. vegáætlunar, flugmálaáætlunar og hafnaáætlunar. Þessi breyting felur ekki í sér neinar breytingar á efni eða innihaldi flugmálaáætlunar heldur er um samræmingaratriði að ræða. Núverandi útliti áætlunarinnar mun því verða breytt áður en hún fer í prentun. Gert er ráð fyrir að vegáætlun verði sett fram á sama formi þegar hún kemur úr samgn.