Staðfest samvist

Mánudaginn 08. maí 2000, kl. 15:50:15 (7018)

2000-05-08 15:50:15# 125. lþ. 107.10 fundur 558. mál: #A staðfest samvist# (búsetuskilyrði o.fl.) frv. 52/2000, GÖ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 107. fundur, 125. lþ.

[15:50]

Guðrún Ögmundsdóttir:

Virðulegur forseti. Hér er stigið skref fram á við hvað báðar tillögurnar varðar í þessu frv. og hér er tryggður réttur þessara barna eins og allra annarra barna þrátt fyrir það að þau búi með hjónum í staðfestri sambúð. Þingflokkur Samfylkingarinnar greiðir þessu frv. atkvæði sitt. Ég segi já.