Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegi forseti. Brtt. sú sem ég flyt við frv. til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs er eingöngu tæknilegs eðlis. Hún er lögð fram með hliðsjón af breytingum sem eru til umfjöllunar í öðrum lögum í þinginu og munu koma frá hv. samgn.