Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tek undir fagnaðarlæti hv. þm. Einars Odds Kristjánssonar yfir þessu frv. Hann tók það fram í upphafi að hann fagnaði þessu frv. mjög. Það þykir mér gott að heyra. Satt að segja hef ég ekki heyrt það hjá þingmönnum að andstaða væri við frv.
Ég get líka verið sammála honum um að staða útflutningsgreinanna er erfið. Raungengisstaðan ræður miklu um það og það er vont að staðan skuli vera þannig. En við erum ekki að breyta neinu í þeim málum með því að breyta lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Það er nú bara einu sinni þannig.
Við skulum líka minnast þess, af því að hv. þm. spurði hvers vegna þingheimi lægi svo á, að hér kemur m.a. til krafa Evrópusambandsins um að við tökum í lög foreldraorlof. Í þeirri umræðu sem maður heyrir um Evrópusambandið virðist það helst standa upp úr að atvinnulífið óski helst eftir því að við göngum að fullu og öllu leyti inn í Evrópusambandið. Þær raddir koma helst frá atvinnulífinu. Hafi hv. þm. áhyggjur af því hvernig við bregðumst við kröfum Evrópusambandsins þá væri ástæða fyrir hann til að ræða það einnig í röðum atvinnurekenda sem ég veit að hann gerir oft og einatt.