Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

Mánudaginn 08. maí 2000, kl. 18:13:52 (7050)

2000-05-08 18:13:52# 125. lþ. 108.5 fundur 260. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða# (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða) frv. 56/2000, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 125. lþ.

[18:13]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Við greiðum atkvæði um það hvort lífeyrissjóðirnir séu eign sjóðfélaga sinna. Ég spyr: Ef lífeyrissjóðirnir, þessir 550 milljarðar eru ekki eign sjóðfélaganna, eign hverra eru þeir þá? Hér er lagt til að tekið sé afdráttarlaust fram að lífeyrissjóðirnir séu eign sjóðfélaganna og engra annarra. Ég segi já.