Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég held að það sé mikill misskilningur hjá hv. þm. að börn þurfi að vera orðin þriggja ára til að geta haft not af því að vera í leikskóla. Ég held að það gerist miklu fyrr, að alveg frá eins og hálfs árs aldri hafi börn mjög gott af því að vera á leikskóla a.m.k. hluta úr degi.
Þar með er ég ekki að draga úr því mikla gildi sem foreldrauppeldi hefur. Það hefur auðvitað gríðarlega mikið gildi. Því miður erum við foreldrar ekki allir jafnfærir um að veita börnum okkar þetta uppeldi af ýmsum ástæðum. Þess vegna held ég að samspil foreldrauppeldis og leikskóla sé affarasælast í þessari stöðu. Ég held að hv. þm. geti, ef hann hugsar sig betur um, verið mér sammála um það.