Varðveisla báta og skipa

Mánudaginn 08. maí 2000, kl. 22:15:05 (7108)

2000-05-08 22:15:05# 125. lþ. 108.37 fundur 636. mál: #A varðveisla báta og skipa# þál. 18/125, Frsm. KHG
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 125. lþ.

[22:15]

Frsm. (Kristinn H. Gunnarsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að mæla fyrir svohljóðandi till. til þál. frá sjútvn. um varðveislu báta og skipa:

,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa tillögur um hvernig skuli staðið að varðveislu gamalla skipa og báta sem eru mikilsverðar minjar um atvinnu og byggðasögu. Í því sambandi verði mótaðar reglur um fjármögnun, sem m.a. Þróunarsjóður sjávarútvegsins taki þátt í, og varðveislugildi báta og skipa skilgreint.

Með þessari ályktunartillögu fylgir svohljóðandi greinargerð, með leyfi forseta:

,,Nefndin flytur þessa tillögu í framhaldi af umfjöllun um 102. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 92/1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum (þskj. 104). Í því er lagt til að Þróunarsjóður sjávarútvegsins veiti byggðasöfnum og sjóminjasöfnum styrki til varðveislu skipa samkvæmt nánar skilgreindum reglum. Frumvarpið var flutt af þingmönnum allra þingflokka sem sæti eiga á Alþingi.

Nefndin er sammála þeim markmiðum sem frumvarpið er byggt á, en telur eðlilegt í ljósi umsagna sem bárust um málið að nánar verði skoðað hvernig best verði staðið að varðveislu báta og skipa. Þá telur nefndin brýnt að mótaðar verði reglur um fjármögnun og að varðveislugildi báta og skipa verði skilgreint. Leggur nefndin áherslu á að málinu verði lokið af hálfu ríkisstjórnarinnar á þessu ári.``

Ekki er gerð tillaga um, herra forseti, að þessu máli verði vísað til nefndar heldur lagt til að því verði vísað rakleiðis til síðari umræðu. Ástæðan er sú að málið hefur þegar hlotið athugun í sjútvn.