Frsm. samgn. (Árni Johnsen):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. samgn. um frv. til laga um breytingu á siglingalögum. Frv. er fylgifiskur frv. um rannsókn sjóslysa.
Meginbreyting samkvæmt frv. er að ekki verður lengur skylda að halda sjópróf. Þá er í því mælt fyrir um ýmsar breytingar á lögunum til samræmis við breytingar sem orðið hafa á réttarfari. Frv. þetta er lagt fram samhliða 567. máli, um rannsóknir sjóslysa, og eru flestar breytingarnar afleiðing af breytingum sem þar er gert ráð fyrir.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.