Veitinga- og gististaðir

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 11:11:54 (7143)

2000-05-09 11:11:54# 125. lþ. 109.15 fundur 406. mál: #A veitinga- og gististaðir# (nektardansstaðir o.fl.) frv. 66/2000, Frsm. meiri hluta ÁJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 125. lþ.

[11:11]

Frsm. meiri hluta samgn. (Árni Johnsen) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Jón Bjarnason getur þess í nál. sínu að líklegt þyki í sambandi við þá staði sem eru til umræðu að á þeim eða í tengslum við þá sé stundað vændi í einhverjum mæli. Alltaf er hyggilegra að fullreyna slíkt áður en sett er fram eitthvað í þeim efnum eins og hér er gert og ég vil spyrja hv. þm. hvort það hafi verið fullreynt.