Jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 11:17:56 (7148)

2000-05-09 11:17:56# 125. lþ. 109.21 fundur 468. mál: #A jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000# frv. 72/2000, Frsm. ÁJ
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 125. lþ.

[11:17]

Frsm. samgn. (Árni Johnsen):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. samgn. allrar um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000.

Með frumvarpinu er lagt til að lagt verði á jöfnunargjald vegna alþjónustu í samræmi við 15. gr. fjarskiptalaga, nr. 107/1999, en þar er kveðið á um að jöfnunargjald skuli ákveðið árlega með lögum. Er lagt til að jöfnunargjaldið fyrir árið 2000 verði 0,18% af bókfærðri veltu fjarskiptafyrirtækja af almennri þjónustu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.