Veitinga- og gististaðir

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 14:42:31 (7204)

2000-05-09 14:42:31# 125. lþ. 109.15 fundur 406. mál: #A veitinga- og gististaðir# (nektardansstaðir o.fl.) frv. 66/2000, JB (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 125. lþ.

[14:42]

Jón Bjarnason (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við atkvæðagreiðslu við 2. gr. gengur málið hratt fyrir sig. Ég hefði viljað að sératkvæðagreiðsla yrði við d-lið þar sem stendur ,,sýningu á nektardansi``. Ég hefði viljað, herra forseti, að það væri sératkvæðagreiðsla um það ákvæði en aðra liði er ég reiðubúinn að styðja.

Ég vonast til að hæstv. forseti geti endurtekið atkvæðagreiðsluna þannig að þessi vilji komi fram.