Fæðingar- og foreldraorlof

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 15:18:53 (7213)

2000-05-09 15:18:53# 125. lþ. 110.1 fundur 623. mál: #A fæðingar- og foreldraorlof# (heildarlög, breyting ýmissa laga) frv. 95/2000, ArnbS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 110. fundur, 125. lþ.

[15:18]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um eitt merkasta mál þessa þings. Hér er verið að greiða atkvæði um mikið jafnréttis- og fjölskyldumál. Full ástæða er til að gleðjast sérstaklega yfir afgreiðslu þess. Allir þingmenn ættu að fylgja þessu frv. og ég trúi ekki öðru en þeir muni gera það í hjarta sínu.