Verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóðir

Þriðjudaginn 09. maí 2000, kl. 17:01:56 (7221)

2000-05-09 17:01:56# 125. lþ. 110.23 fundur 420. mál: #A verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóðir# (menntunarkröfur, tryggingar, afleiðusamningar o.fl.) frv. 99/2000, Frsm. meiri hluta VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 110. fundur, 125. lþ.

[17:01]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er hrærður yfir hinni miklu vináttu hv. þm. og viðskrh. og ég tek það þannig að ég eigi að leggja mig allan fram um að vera jafnmikill vinur hæstv. ráðherra og hv. þm. er. En hv. þm. veit líka að það er ekki minn stíll að bera samræður mínar og hæstv. ráðherra á torg.