Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Lúðvík Bergvinsson kom inn á það hvort þetta frv. gilti ekki jafnt um opinera aðila sem einkaaðila. Það er hárrétt, það tekur til allra, enda segir í 3. gr. frv.: ,,Lögin gilda um sérhverja rafræna vinnslu persónuupplýsinga``. --- Sérhverja rafræna vinnslu, og skiptir náttúrlega engu máli hvort um er að ræða opinbera aðila eða einkaaðila sem sjá um þá vinnslu eða eru ábyrgðaraðilar samkvæmt t.d. 2. gr. frv. en þar segir um skilgreiningu á ábyrgðaraðila að hann sé: ,,Sá aðili sem ákveður tilgang vinnslu persónuupplýsinga, þann búnað sem notaður er, aðferð við vinnsluna og aðra ráðstöfun upplýsinganna.``
Að lokum vil ég taka undir það með hv. þm. Lúðvíki Bergvinssyni að þetta eru merkilegar breytingar sem við erum að ræða hér. Þetta verður að mínu mati farsæl breyting ef og vonandi þegar þetta frv. verður samþykkt á hinu háa Alþingi.