Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég vek aðeins athygli manna á því sérkennilega ákvæði sem er að koma til atkvæða, að fyrir hverjar alþingiskosningar skuli kjörstjórn í Reykjavík setjast niður og ákveða kjördæmamörk og auglýsa það nokkrum vikum fyrir kosningar. Ég hygg að það vandræðalega ákvæði sem 7. gr. hefur að þessu leyti að geyma segi allt sem segja þarf um þá álappalegu breytingu á kjördæmaskipan og kosningalögum er verið að gera að þessu leytinu til.