Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Hv. þm. Ísólfur Gylfi Pálmason hefði óskað að hægt yrði að hefja framkvæmdir í sumar. Það er algjörlega útilokað eins og staðan er í dag. Umhverfismatið er ekki komið inn og hefur ekki farið í sitt ferli. Þannig er útilokað að fara í þessa framkvæmd í sumar. Ég sem umhvrh. kem ekki að þessu máli fyrr en matið kemur inn. Að sjálfsögðu verður það unnið á eðlilegum og löglegum hraða þegar það loks skilar sér frá Landgræðslunni. Landgræðslan er að vinna að matsskýrslu og frekari rannsóknum. Verði niðurstaðan framkvæmdinni í vil, hugsanlega með einhverjum skilyrðum en um það er erfitt að segja á þessari stundu, er málið líka háð því að fé fáist til framkvæmdanna þegar matið er komið í höfn. Þannig þarf að skoða ýmis mál áður en framkvæmdir hefjast ef af þeim verður.