Vinnureglur Tryggingastofnunar um bifreiðar fatlaðra

Miðvikudaginn 10. maí 2000, kl. 15:01:31 (7450)

2000-05-10 15:01:31# 125. lþ. 114.20 fundur 633. mál: #A vinnureglur Tryggingastofnunar um bifreiðar fatlaðra# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 125. lþ.

[15:01]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég þakka ágætar ábendingar sem komu fram hjá fyrirspyrjanda. Eins og kom fram í fyrri ræðu minni er þetta í mikilli endurskoðun og þetta er í mikilli deiglu. Ýmsar framfarir eru þarna í gangi og það sem hér hefur komið fram bætist í þann pakka sem verið er að vinna úr.