Sigríður A. Þórðardóttir:
Herra forseti. Ég minni á að við umræður um vegáætlun í þinginu í vetur kom mjög glögglega í ljós hversu mikinn áhuga þingmenn höfðu á því að einstakar framkvæmdir næðu fram að ganga. Ég man varla eftir að aðrar eins umræður hafi verið um vegáætlun, og þá alveg sérstaklega hjá þingmönnum höfuðborgarsvæðisins. Mér fyndist því miklu eðlilegra að þingmenn gleddust yfir því að verið væri að setja aukna fjármuni í vegamálin. Það var líka mjög athyglisvert að samgn. afgreiddi málið með einu nefndaráliti þannig að ég er ekki viss um að óánægjan sé eins djúpstæð og hv. þm. sem hóf þessa umræðu vill vera láta.
Varðandi vinnubrögð þingsins að öðru leyti, mál og þinglok, þá verður stjórnarandstaðan að sætta sig við að lýðræðislega sé staðið að málum. Það er meiri hluti í þinginu. Það eru bara þau vinnubrögð sem ástunduð eru víðast hvar að það er meiri hlutinn sem ræður.