Framhald þingfundar

Laugardaginn 13. maí 2000, kl. 15:49:50 (7764)

2000-05-13 15:49:50# 125. lþ. 118.97 fundur 552#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 125. lþ.

[15:49]

Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil að fram komi að fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi hafi ekki komið saman til að samræma sjónarmið sín í þessu efni um framvindu þinghaldsins að öðru leyti en því sem rætt hefur verið á fundum þingflokksformanna. Þar hefur það verið samdóma álit að stefna að því að hraða þinghaldinu. Þar til önnur sjónarmið verða uppi eða menn samræma stefnu sína eða sjónarmið á þeim vettvangi mæli ég ekki með því að þinghaldinu verði frestað núna.