Þingfrestun

Laugardaginn 13. maí 2000, kl. 22:23:22 (7811)

2000-05-13 22:23:22# 125. lþ. 120.95 fundur 550#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 125. lþ.

[22:23]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 125. löggjafarþings, frá 11. maí 2000 eða síðar, ef nauðsyn krefur, enda verði þingið kvatt saman til fundar á ný eigi síðar en 30. júní 2000.

Gjört á Bessastöðum, 11. maí 2000.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 125. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.