Ávarp aldursforseta

Föstudaginn 01. október 1999, kl. 14:24:05 (3)

1999-10-01 14:24:05# 125. lþ. 0.94 fundur 26#B ávarp aldursforseta#, Aldursforseti PP
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur, 125. lþ.

[14:24]

Aldursforseti (Páll Pétursson):

Ég býð hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa. Ég vona að störf Alþingis sem nú eru að hefjast verði landi og þjóð til heilla. Enn fremur læt ég í ljós þá ósk að við alþingismenn eigum gott samstarf við starfsfólk Alþingis eins og endranær.

Þessum fundi er nú frestað til klukkan fjögur.