Tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda

Þriðjudaginn 05. október 1999, kl. 13:36:34 (28)

1999-10-05 13:36:34# 125. lþ. 3.93 fundur 31#B tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 125. lþ.

[13:36]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hafa tilkynningar um formennsku í eftirfarandi nefndum:

Á fundi fjárln. 4. október var Jón Kristjánsson kjörinn formaður nefndarinnar og Einar Oddur Kristjánsson varaformaður.

Á fundi félmn. í dag var Arnbjörg Sveinsdóttir kjörin formaður nefndarinnar og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.

Á fundi iðnn. í dag var Hjálmar Árnason kjörinn formaður nefndarinnar og Guðjón Guðmundsson varaformaður.

Á fundi menntmn. í dag var Sigríður Anna Þórðardóttir kjörin formaður nefndarinnar og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.

Á fundi sjútvn. í dag var Einar K. Guðfinnsson kjörinn formaður nefndarinnar og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.