Gísli S. Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. svörin þó við séum ósammála varðandi ákveðnar aðgerðir. Ég tel rétt að bremsa ofurlítið eins og gert er með frestun framkvæmda ef það kostar ekki neitt. Ég hef áhyggjur af því og spurði hvort athugað hafi verið hve mikið kosti að stöðva framkvæmdir við Alþingishúsið.
Ég bendi á að í kringum Alþingishúsið munu verða ljót sár jafnvel þó að platan verði komin. Ég minni þá sérstaklega á stöðu Reykjavíkur í því sambandi sem menningarborgar Evrópu á næsta ári. Þar þarf að vera vel frá gengið og það mun kosta mikið. Þess vegna var ég að velta fyrir mér þessum 100 millj., af öllu því sem ætlað er að draga úr framkvæmdum við.
Um leið benti ég á að menn hafa haft hugmyndir um óbreytt verklok. Það þýðir að hraða verður mjög framkvæmdum og það er eðlilegt að menn spyrji: Hvað kostar að hraða framkvæmdum eins og menn hljóta þá að sjá fyrir?
Ég hef ekki ástæðu til að ræða meira við hæstv. fjmrh. að þessu sinni. Ég held að ég hafi komið því að sem ég vildi. Við erum að sjálfsögðu sammála um að hér er aðeins um tillögur að ræða. Það á eftir að gera breytingar á fjárlagafrv. þó að í meginatriðum verði ekki stórar breytingar. Breytingarnar munu þó nema a.m.k. 2--3 milljörðum, þær breytingar sem gerðar verða núna á haustmánuðum. Ég bið menn að taka eftir því.