Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Aðeins út af þeim tveimur atriðum sem hv. þm. nefndi. Ég hygg að rétt sé með farið að svokallaðir dreifbýlisstyrkir eða jöfnun á námskostnaði á framhaldsskólastiginu hafi hækkað um u.þ.b. 130% á undanförnum fjórum árum. Það eru handbærar tölur í fjárlagafrv. sem sýna að þessi aðstoð hefur hækkað um 57% frá því 1998 miðað við frv. fyrir næsta ár. Ekki er hægt að tala um þetta sem einhverjar litlar tölur eða einhverja ölmusu eða einhverja smámuni. Tekin var meðvituð ákvörðun um að hækka þetta stórlega á árinu 1999, á yfirstandandi ári. Sú hækkun flyst að sjálfsögðu áfram yfir á næsta ár. Er þingmanninum ekki kunnugt um þetta?
Að því er varðar niðurgreiðslur á rafhitun liggur fyrir mörkuð stefna um það, sem var mótuð í þeirri byggðanefnd sem hv. þm. nefndi og ég hygg að hann hafi sjálfur setið í, að meðalkostnaður þeirra rafveitna sem nytu niðurgreiðslu yrði nokkurn veginn jafn því sem væri þar sem um er að ræða meðalhitaveitu. Að þessu marki verður unnið. Það fara 600 millj. kr. í þetta verkefni á næsta ári samkvæmt frv. Ég hygg að sú upphæð hafi aldrei verið meiri. Þetta er hins vegar mál sem er auðvitað til skoðunar og meðferðar áfram og það stendur ekki til í neinu að hvika frá þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið.