Tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda

Miðvikudaginn 06. október 1999, kl. 13:30:17 (93)

1999-10-06 13:30:17# 125. lþ. 4.92 fundur 33#B tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 125. lþ.

[13:30]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hafa tilkynningar um formennsku í eftirfarandi nefndum.

Á fundi umhvn. í dag var Ólafur Örn Haraldsson kjörinn formaður nefndarinnar og Kristján Pálsson varaformaður.

Á fundi landbn. í dag var Hjálmar Jónsson kjörinn formaður nefndarinnar og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.

Á fundi samgn. í dag var Árni Johnsen kjörinn formaður nefndarinnar og Hjálmar Árnason varaformaður.

Á fundi utanrmn. í dag var Tómas Ingi Olrich kjörinn formaður nefndarinnar og Jón Kristjánsson varaformaður.