Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Miðvikudaginn 06. október 1999, kl. 14:27:36 (108)

1999-10-06 14:27:36# 125. lþ. 4.2 fundur 3. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# (gjöld af bensíni) frv. 86/1999, JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 125. lþ.

[14:27]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Áform Samfylkingarinnar eru um breytta forgangsröðun í ríkiskerfinu. Ekki t.d. að gefa ríkiseigur til fjármagnseigenda og stóreignamanna, þar sem peningarnir eru fyrir, heldur að breyta forgangsröðun í þjóðfélaginu, hvernig við skiptum því sem til skiptanna er. Og þar viljum við láta umhverfismálin fá miklu hærri sess en þessi ríkisstjórn gerir.