Mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar

Fimmtudaginn 07. október 1999, kl. 15:03:36 (210)

1999-10-07 15:03:36# 125. lþ. 5.12 fundur 7. mál: #A mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar# þál., Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 125. lþ.

[15:03]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill geta þess í ljósi þeirra umræðna sem fara fram um fundarstjórn forseta að hér er ekki efnisumræða í gangi. Forseti hlustar auðvitað á óskir um tiltekna hluti er lúta að formi fundarins. Auðvitað verður reynt að verða við óskum um útskrift eins fljótt og kostur er og forseti mun freista þess að sú ósk hljóti byr undir báða vængi og í það verði farið fyrr en síðar en getur þó ekki tímasett það nánar. En forseti frábiður sér að hér fari fram efnisumræða um málið.