Mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar

Fimmtudaginn 07. október 1999, kl. 15:04:16 (211)

1999-10-07 15:04:16# 125. lþ. 5.12 fundur 7. mál: #A mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Fljótsdalsvirkjunar# þál., SighB (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 125. lþ.

[15:04]

Sighvatur Björgvinsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir undirtektirnar og ég tek það skýrt og skorinort fram að ætlan mín var ekki sú að trufla með einum eða neinum hætti þær umræður sem þurfa að fara fram og eiga að fara fram og eru að fara fram heldur þvert á móti.