Viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma

Mánudaginn 11. október 1999, kl. 15:07:53 (295)

1999-10-11 15:07:53# 125. lþ. 6.91 fundur 52#B viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 125. lþ.

[15:07]

Forseti (Halldór Blöndal):

Nú vill forseti ekki taka undir það að almennur slappleiki sé í samskiptum Alþingis og ráðherra en vill þó að fram komi að vera má að ráðherrar hafi ekki verið látnir vita um þennan fyrirspurnatíma með nægilegum fyrirvara. Af þeim sökum verður séð til þess eftirleiðis að ráðherrar viti fyrr um óundirbúnar fyrirspurnir en að þessu sinni.