Ráðning forstjóra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Mánudaginn 11. október 1999, kl. 15:10:59 (297)

1999-10-11 15:10:59# 125. lþ. 6.1 fundur 43#B ráðning forstjóra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 125. lþ.

[15:10]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda að miklar breytingar hafa orðið á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Tekjur flugstöðvarinnar hafa aukist mjög verulega þannig að búið er að ná bærilega utan um þann fjárhagsvanda sem þar var.

Ég tók þá ákvörðun að skipa stjórn yfir Flugstöð Leifs Eiríkssonar til þess að fara með þau mál. Hún gerði það að sinni tillögu að svona yrði haldið á málinu og ég fór einfaldlega að þeirri tillögu.