Ráðning forstjóra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Mánudaginn 11. október 1999, kl. 15:12:38 (299)

1999-10-11 15:12:38# 125. lþ. 6.1 fundur 43#B ráðning forstjóra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 125. lþ.

[15:12]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég get aðeins endurtekið það að ég fól þessari stjórn að fjalla um þetta mál. Stjórnin kom með ákveðna tillögu í því máli og ég fór að þeirri henni. Það var óheppilegt hversu langur dráttur varð á málinu en ég og starfsmenn mínir teljum að það sé fyllilega í samræmi við lög og reglur um svipuð tilvik.