Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Daglega berast fréttir af árásum rússneska hersins á byggð ból í Tsjetsjeníu. Samkvæmt fréttum fjölmiðla eru skotmörkin ekki einvörðungu þau sem hafa hernaðarlega þýðingu heldur hafa íbúðarhverfi í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu og víðar orðið fyrir sprengjuregni flughersins. Yfirgangur og ofbeldi rússneska hersins er réttlættur í nafni baráttu gegn hryðjuverkum. En fórnarlömbin í þeirri tilraun Rússa til að berja Tsjetsjeníu undir sig eru óbreyttir borgarar. Hafa þeir flúið vígvöllinn tugþúsundum saman.
Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs hefur ályktað um þetta hernaðarofbeldi og beint því til íslenskra stjórnvalda að þau beiti sér fyrir því á alþjóðavettvangi að komið verði á vopnahléi í Tsjetsjeníu og stríðandi aðilum gert að leysa deiluna friðsamlega.
Ég vil beina þeirri spurningu til hæstv. utanrrh., hvað hafi verið aðhafst í þessu máli af hálfu íslenskra stjórnvalda og á hvern hátt þau hyggist beita sér.