Réttindi sjúklinga

Þriðjudaginn 12. október 1999, kl. 17:21:33 (435)

1999-10-12 17:21:33# 125. lþ. 7.12 fundur 9. mál: #A réttindi sjúklinga# (vísindasiðanefnd) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 125. lþ.

[17:21]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit að hv. þm. veit að stjórnendur sjúkrastofnana bera ábyrgð á þeim gögnum sem þar eru. Varðveisla gagna sem eru á sjúkrastofnunum er á ábyrgð sjúkrastofnananna. Ef minnsti grunur væri um að menn nýttu þessi gögn ólöglega þá væri að sjálfsögðu farið í það. Ég mundi þann sama dag og ég hefði minnsta grun um það láta landlækni rannsaka slík mál.