Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Rétt er að hafa í huga að í byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar fjallar einn þátturinn um þetta atriði og ef ég man rétt eru ætlaðar 300 millj. í byggðaáætluninni til að greiða verð þessara íbúða niður á móti sveitarfélögum.
Starfshópur hefur verið skipaður til að vinna að þessu verkefni og í honum eru frá sveitarfélögunum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands stjórnar sveitarfélaga, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri. Síðan er Hallgrímur Guðmundsson frá fjmrn. og Gunnar Bragi Sveinsson aðstoðarmaður minn frá félmrn. Nefndin er tekin til starfa og ég vænti þess að hún komist að niðurstöðu sem við getum unað við.
Hins vegar er ekki komin sátt um það milli ríkis og sveitarfélaga hvernig eigi að skipta pakkanum, hvernig eigi að skipta þeim byrðum sem þarna verða til. Varasjóður viðbótarlána kemur líka að þessu máli og hann er farinn að vinna eins og honum var ætlað. Gott samráð hefur verið við sveitarfélögin um þetta mál og ekki árekstrar eða alvarlegur ágreiningur að því er ég tel vera.
Hv. þm. spyr um hver sé heildarafskriftarþörf vegna heildarinnlausnarskyldu sveitarfélaganna og ekki eru til neinar áreiðanlegar upplýsingar varðandi þetta því að útreikningar verða að byggja á húsnæðisverði á hverjum stað, hvað er mögulegt að fá, hvert er raunvirði húsnæðis á viðkomandi stað. Þetta er meira að segja breytilegt á stöðunum eftir því hvernig vindurinn blæs. Á Suðureyri var t.d. mikið framboð af húsnæði fyrir líklega hálfu öðru ári og seldist ekki. Síðan breytast viðhorfin á Suðureyri, e.t.v. með bættum samgöngum eða bættum aflabrögðum og húsnæðið rýkur út þannig að þetta er fljótt að breytast.
Hv. þm. spurði hvar þörfin væri mest. Ég tel vafalaust að sveitarfélögin á Vestfjörðum séu í mestum vanda stödd út af þessum félagslegu húsnæðismálum enda er það eðlilegt því að þaðan hefur fólkið flutt í stríðustum straumi.