Árni Steinar Jóhannsson:
Herra forseti. Að mínu mati er vandamál landsbyggðarinnar kannski fyrst og fremst það að ríkisstjórn og Alþingi hafa vanrækt að hafa yfirlit og vinna við stefnumótun í innanríkismálum. Ótrúlega lítill tími fer í að velta fyrir sér orsökum og afleiðingum t.d. þegar við erum að tala um fjárfestingar og það þarf enga sérfræðinga til að átta sig á því að með ákvarðanatöku um byggingu á stóriðju á suðvesturhorninu, kringum höfuðborgarsvæðið, ásamt stórfelldum fjárfestingum á sama tíma, er líklega orsökin á helmingi þeirra sem hugsa sér til hreyfings, kannski 1.000 manns. Þetta er allt saman mannanna verk (Forsrh.: Þess vegna viljum við byggja ...) og möguleikar landsbyggðarinnar eru virkilega bjartir ef við tökum á honum stóra okkar og gerum ráðstafanir sem duga. Það er vel hægt. Ég er bjartsýnn fyrir hönd landsbyggðarinnar.
Í þinginu er til umræðu þáltill. sem er í 12 liðum frá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði um sérstakar aðgerðir í byggðamálum og við trúum því staðfastlega að með því að hið opinbera afl ríkisins sé notað til að gefa tóninn þannig að trú manna aukist á uppbyggingu, félagslegri uppbyggingu fyrirtækja og einstaklinga, það sé það verkfæri sem á að nota. Staðreyndin er nefnilega sú að opinberar fjárfestingar á landsbyggðinni, t.d. síðustu fjögur árin hafa verið óverulegar. Tökum sem dæmi heimabæ minn, Akureyri, 30 milljónir í óskabarnið háskólann, 30 milljónir í sjúkrahúsið. Þetta er ekki neitt miðað við það sem suðvesturhornið fær. Þetta er okkar verk, það er okkar verk að taka þessi mál til umfjöllunar og það er okkar verk að gefa tóninn til lagfæringa. Og það stendur ekki á almenningi. Íslendingar eru duglegt fólk og ef þeir hafa trú á því að við ætlum að byggja landið allt, þá snúum við þróuninni við.