Framlagning frv. til lokafjárlaga

Fimmtudaginn 14. október 1999, kl. 10:39:36 (518)

1999-10-14 10:39:36# 125. lþ. 9.91 fundur 68#B framlagning frv. til lokafjárlaga# (aths. um störf þingsins), SvH
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 125. lþ.

[10:39]

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessa skilagrein hans og hef ekkert við hana að athuga nema síður sé. Mættu fleiri ráðherrar taka sér þetta til fyrirmyndar þegar einhver hængur verður á um framkvæmd laga. Til að mynda vænti ég þess að hæstv. viðskrh. geri fljótlega grein fyrir því hvers vegna hann framkvæmir ekki í samræmi við lög um Seðlabanka, um skipun bankastjóra þar.