Skýrsla umboðsmanns Alþingis 1997

Fimmtudaginn 14. október 1999, kl. 11:14:55 (526)

1999-10-14 11:14:55# 125. lþ. 9.3 fundur 66#B skýrsla umboðsmanns Alþingis 1997# (munnl. skýrsla), RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 125. lþ.

[11:14]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þær upplýsingar sem fram hafa komið um skipan umboðsmanns en sérstaklega þó að við munum taka aftur til skoðunar breytingar á þingsköpum og fara í þá vinnu sem er svo brýn.