Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég ætla að virða það við forseta þótt hann hafi lagt lykkju á leið sína í ræðu sinni. Það er rétt hjá hæstv. forseta að tillögur komu fram hjá Alþingi um að bæta við einum lögfræðingi. En það breytir ekki því sem við sjáum í fjárlagafrv. sem hefur legið á borðum alþingismanna í nokkra daga. Þar er ekki gert ráð fyrir að bætt verði við einum lögfræðingi. Þó að slíkar tillögur hafi komið frá Alþingi þá hafa þær ekki fengið náð fyrir augum fjmrh., a.m.k. ekki við fyrstu gerð fjárlagafrv.
Ég ætla því að ítreka þá fyrirspurn til hæstv. forseta hvort hann muni ekki vinna markvisst að því að koma inn í þetta fjárlagafrv., ef svo má að orði komast, einum lögfræðingi fyrir stofnunina. Ef ég skildi orð hans rétt, a.m.k. það sem sneri að þeirri fyrirspurn sem ég bar upp, þá tel ég að hæstv. forseti muni vinna markvisst að því áður en fjárlagafrv. verði samþykkt á Alþingi.