Starfsskýrsla Ríkisendurskoðunar 1998

Fimmtudaginn 14. október 1999, kl. 12:13:53 (537)

1999-10-14 12:13:53# 125. lþ. 9.4 fundur 67#B starfsskýrsla Ríkisendurskoðunar 1998# (munnl. skýrsla), samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 125. lþ.

[12:13]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Herra forseti. Það liggur alveg ljóst fyrir hvert verkefni þessa starfshóps var og ég get upplýst að væntanlega á mánudaginn verður niðurstaða starfshópsins kynnt. Að sjálfsögðu verður greiður aðgangur að niðurstöðu og skýrslu þessa hóps fyrir þingmenn, það fer ekkert á milli mála.

Ég ekki upplýst hver kostnaðurinn vegna þessarar vinnu er en það er alveg ljóst að þarna hefur verið lögð í heilmikil vinna og væntanlega verður hægt að upplýsa það ef um verður spurt þegar þar að kemur.